| Velkomin í leikskólann |
|
|
|
|
Við í leikskólanum Fálkaborg bjóðum ykkur velkomin í leikskólann okkar. Lögð er áhersla á að börnin fái jákvæða reynslu og vinni úr reynslu sinni á sínum forsendum. Til þess að börn læri, þurfa þau að vera í öruggu umhverfi þar sem lífsgleði og Starfsmannahópurinn er fullur vilja til þess að gera leikskólann Fálkaborg að stað sem börnum, foreldrum og starfsfólki líður vel. Til þess að ná markmiðum okkar höfum við ákveðið fjölbreyttar leiðir og má þar helst nefna áherslu á gott foreldrasamstarf. Okkur finnst gaman að taka á móti gestum sem vilja kynnast starfi okkar. Við bjóðum þá sérstaklega velkomna sem ætla að vera með okkur til lengri tíma, bæði börn, foreldra og samstarfsmenn.
Verið velkominn í Fálkaborg.
|