Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Foreldrafélag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

des_116Foreldrafélag Fálkaborgar stendur fyrir margskonar uppákomum á hverju leikskólaári. Þá hittast foreldrar með börnum sínum í leikskólanum. T.d. á jólaföndri, jólaballi, páskabingói, vorferð, vorhátíð og fleiri viðburðum.

Hlutverk foreldrafélags er afar mikilvægt. Með viðburðum þar sem börn hittast ásamt foreldrum sínum er verið að styrkja tengsl og auka kynni fólksins í hverfinu. Það verður svo til þess að byggja grunn að góðu samfélagi.

Einu sinni í mánuði, frá september til maí, fundar foreldraráð með leikskólastjóra. Á fundunum er kynnt það sem er á döfinni í leikskólanum og rætt um það. Á þessum fundum myndast oft afar gagnlegar umræður sem stuðla að því að gera leikskólann betri fyrir börnin.

Foreldrafélagið innheimtir gjald í foreldrasjóð. Foreldraráð kynnir ársskýrslu félagsins á foreldrafundi í leikskólanum að hausti ár hvert. Á þeim fundi eru jafnframt kosnir fulltrúar í foreldraráð.


Foreldrafélagið er með netfangið foreldrafelag.falkaborgar@gmail.com



Foreldraráð

Berglind Magnúsdóttir

Anna Margrét Sigurðardóttir

Helga Karlsdóttir

Sigríður Jónsdóttir

 

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir