| Deildir |
|
|
|
|
Dagskipulag Arnardeildar, Fálkadeildar og Ugludeildar Dagskipulag er einfalt, föst tímadagskrá sem barnið þekkir. Jafnvægi ríkir á milli stunda sem barn er í sínum fasta hóp með jafnöldrum og í hóp með fleiri börnum á ýmsum aldri. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins, tími fyrir sjálfsprottinn leik barna er í öllum dagskráliðum leikskólans.
Í útveru eykst líkamlegt úthald barnanna, þau læra ýmislegt um náttúruna og síðast en ekki síst fá þau að njóta hennar. Börnin læra leiki og þau læra líka að vera úti í öllum veðrum. Börnunum er hjálpað við að klæða sig sjálf og ákveða hvað þau eiga að fara í. Samverustundir. Í samverustundum syngja börnin saman, hlusta á sögur, hlusta á hvert annað og njóta þess að vera saman. Börnin læra söngva og þulur og ýmsa leiki. Þau læra að koma fram og tjá sig.
Börnin velja sér verkefni sem þau leika sér með.
8:00 - 8:30 leikur 8:30 - 9:00 morgunverður 9:00 - 10:30 hópatími/ávaxtatími 10:30 - 11:00 valtími/útivist 11:30 - 12:00 samverustund 12:00 - 12:30 hádegisverður 12:30 - 13:00 hvíld 13:00 - 14:30 valtími/útivist/hópatími 14:30 - 15:00 síðdegishressing 15:00 - 15:30 samverustund 15:30 - 17:00 leikur
|