| Afhending Grænfánans og opið hús |
|
|
|
|
Fálkaborg fær nú Grænfánann í þriðja sinn. Fyrsti fáninn var fyrir endurvinnslu, annar fáninn fyrir menntun til sjálfbærni og nú fyrir vatn og orku. Markmið Grænfánaskóla er að: Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku. Efla samfélagskennd innan skólans. Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum skólans. Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð þegar teknar eru ákvarðanir. Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfimál. Dagskráin 16. júní hefst klukkan 14 við Fánastöngina og lýkur klukkan 16 á opnu húsi.
|