Hér að neðan má finna hinar ýmsu spurningar varðandi daglegt starf í leikskólanum.
Veikindi barna
Ef börnin verða veik á meðan þau eru í leikskólanum eða ef þau meiða sig látum við ykkur vita og komum okkur saman um hvað gert verður.
Munið því að láta okkur vita ef þið breytið um heimasíma eða vinnusíma.
Eins þurfum við að vita ef barnið gistir hjá öðrum en forráðamönnum svo við getum náð í þá ef eitthvað gerist.
Það getur skipt sköpum að við vitum um breytingar á högum barnsins, hegðun barnanna breytist oft við litlar breytingar heima eða hjá nánum ættingjum og það er betra að mæta þörfum barnsins ef við vitum um þessar breytingar.
Ef börnin eru veik eða með smitsjúkdóma eru þau að sjálfsögðu heima.
Við biðjum ykkur að hringja í leikskólann eða senda tölvupóst til að láta okkur vita.
Það er gott fyrir okkur að vita hvað amar að og hvernig barninu líður.
Lyf eru ekki gefin í leikskólanum nema í undantekningartilfellum. og ef um langveik börn sé að ræða. Trúnaðarlæknirinn hefur einnig bent á, að þó svo að barn sé í leikskóla allan daginn, eigi að vera hægt að hafa lyfjagjafirnar þannig að þær séu gefnar áður en barn mætir í leikskólann og síðan strax og komið er heim