Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fjársjóðsleit Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 10 júní 2010 13:49

Í dag var leitað að fjársjóði fyrir utan Fálkaborg. Saga tengd Latabæ var sögð krökkunum og svo var hafin leit að silfursteinum. Krakkarnir fóru í hópum og allir voru voða glaðir að finna silfurfjársjóð.

 

Fleiri myndir

 
Brúðubíllinn Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 09 júní 2010 13:24

Allur leikskólinn fór í morgun að sjá Brúðubílinn. Krakkarnir voru spennt á leiðinni og kölluðu brúðubíllinn, brúðubíllinn, þegar þau sáu hann. Sýningin var skemmtileg og margir litríkar brúður sýndu listir sínar.

 

Myndir

 
Moltu- og garðvinna Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 08 júní 2010 14:26

Um daginn súrnaði í moltutunnunni, en börnin kipptu sér ekkert upp við lyktina og skreyttu hrúguna fagurlega með blómum.

 

 

 

 

 

Börnin voru líka full áhuga þegar moltan sem tókst vel var sigtuð. Allir voru ánægðir og hissa á að matarafgangarnir, sem við setjum í moltufötuna inni, hefðu breyst í þessa fínu mold.

 

 

 

 

 

Við settum niður í matjurtagarðinn okkar, grænkál, steinselju, blaðkál og ýmislegt fleira spennandi. Einnig sáðum við fyrir gulrótum, radísum og spínati.

 

Fleiri myndir hér.

 
Íþróttavika Prenta
Fréttir frá Ugludeild
mánudagur, 07 júní 2010 14:11

  Íþróttavikan er hafin í Fálkaborg. Þá er mikið um að vera í garðinum.

 

  Myndir

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 61

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir