|
Fréttir frá Ugludeild
|
|
fimmtudagur, 24 júní 2010 13:49 |
|
Ugludeild fór í Húsdýragarðinn í gær. Veðrið var yndislegt og krakkarnir nutu sín í leiktækjunum og við að skoða dýrin.
Myndir |
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 22 júní 2010 14:30 |
|
Það var mikið um að vera í garðinum í dag. Starfsmenn og börn hjálpuðust að við að endurvinna pappír og búa til nýjan litskrúðugan pappír.
Töluvert fleiri myndir má skoða hér. |
|
miðvikudagur, 16 júní 2010 15:11 |
|
Fálkaborg fékk Grænfánn í þriðja sinn. Orri Páll frá Landvernd færir börnunum fánann. Börnin vita af hverju Grænfáninn heitir Grænfáni og hvað þau þurfa að gera til þess að fá Grænfánann. Grænfánahátið!
|
|
Afhending Grænfánans og opið hús |
|
|
sunnudagur, 13 júní 2010 16:02 |
|
Fálkaborg fær nú Grænfánann í þriðja sinn. Fyrsti fáninn var fyrir endurvinnslu, annar fáninn fyrir menntun til sjálfbærni og nú fyrir vatn og orku. Markmið Grænfánaskóla er að:
Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
Efla samfélagskennd innan skólans.
Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum skólans.
Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð þegar teknar eru ákvarðanir.
Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfimál.
Dagskráin 16. júní hefst klukkan 14 við Fánastöngina og lýkur klukkan 16 á opnu húsi.
|