Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Öskudagsfjör Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 11:31

 Á Öskudaginn var mikið fjör hér í Fálkaborg. Allir hittust inni í sal og þar var kötturinn sleginn úr tunnunni. Hver og einn fékk að slá í tunnuna og að lokum brast hún og út valt snakk sem allir fengu að gæða sér á. Síðan var haldið ball þar sem mikið var dansað og sungið. Börn og starfsfólk var skrautlega klætt og allir skemmtu sér konunglega.

  Öskudagsmyndir

 Fleiri Öskudagsmyndir

 
Dáin mús í Fálkaborg Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 11:56

 Í morgun fannst dáin mús fyrir utan Fálkaborg. Hún var sett í box og fengu börnin að virða hana fyrir sér. Það var mjög spennandi og vildu einhverjir meina að hún væri nú orðin að engli :)

 Fleiri myndir

 
Gaman úti Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 11:48

 Krakkarnir á Ugludeild voru í skemmtilegum leik í útiverunni í gær, eitri í flösku. Myndir

 
Bolludagsundirbúningur Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 12 febrúar 2010 12:56

Börnin eru búin að búa til bolluvendi í leikskólanum þau reyna svo að flengja foreldra sína með þeim og fá að sjálfsögðu bollur að launum.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 61

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir