Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Allir eiga fjölskyldu Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 17 mars 2010 10:04

Allir eiga heimili, líka dýrin. Um daginn könnuðum við heimili stelpnanna í græna hóp á Fálkadeild en í dag spáðu þær mikið í dýrin sem við vorum að eignast, fjölskyldur þeirra og heimkynni.

 
Grænar stúlkur í útinámi! Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 16 mars 2010 13:48

Stelpurnar í Græna hóp á Fálkadeild voru í útinámi í dag. Þær voru í skóginum við Fálkaborg þar sem þær byggðu hús úr greinum sem þær fundu lausar. Þetta var mikil vinna og skemmtileg. Sjáið myndirnar.

 
Heimsókn á slökkvistöðina Prenta
þriðjudagur, 09 mars 2010 15:09

Strákarnir í græna hóp á Fálka- og Ugludeild fóru í spennandi ferð á Slökkvistöðina í Reykjavík. Þeir þurftu að borða snemma inn í sal til að ná strætó í Mjóddinni. Þegar komið var á leiðarenda tóku slökkviliðsmennirnir Finnur og Borgar á móti okkur og sýndu strákunum slökkvibílana, sjúkrabílana og köfunargræjur. Sigurður sýndi okkur svo Neyðarlínuna og kenndi okkur á hringja í 112:

1 fyrir eitt nef
1 fyrir einn munn
2 fyrir tvö augu

Frábær ferð!

 

 
Gönguferð um hverfið okkar Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 09 mars 2010 14:50

Í dag fór græni stelpuhópurinn á Fálkadeild í göngutúr um hverfið. Tilgangur göngunnar var að heimsækja heimili allra stelpnanna í hópnum. Þetta var því löng ganga og stóðu þær sig allar með prýði enda göngugarpar miklir og duglegar stelpur. Þeim fannst mjög spennandi að finna húsin sín og láta taka mynd af sér fyrir framan þau.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 61

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir