Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Bingó í leikskólanum Prenta
Almennar fréttir
laugardagur, 27 mars 2010 11:29

Hressir og kátir krakkar, foreldrar, ömmur og afar spiluðu bingó í leikskólanum á laugardaginn. Páskabingó er árviss atburður hjá foreldrafélaginu í Fálkaborg sem enginn vill missa af. Myndir

 
Tíndum saman rusl í móunum Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 25 mars 2010 16:04

Græni drengjahópur á Fálkadeild fór í útinám í morgun í móana fyrir ofan Fálkaborg. Þar tíndum við saman það rusl sem á vegi okkar varð. Í fyrstu virtist það ekki mikið en þegar á hólminn var komið náðum við að fylla 6 poka af misgáfulegu rusli, allt frá litlum plastflyksum og upp í umbúðir af sykurbráð.

 

Hópurinn gaf sér líka tíma í að leggjast í grasið og hlusta eftir umhverfishljóðum og greindum við nokkur spennandi hljóð, s..s frá bílaumferð, strætisvagni, sjúkrabíl, flugvél og fuglunum.

 

 
Græni hópur í grjónum Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 24 mars 2010 11:29

 Græni hópur á Ugludeild fór í heimsókn á Arnardeild í dag og fékk að leika sér með hrísgrjón. Grjónin eru í risastórum kassa og hægt að sulla með þau í tómum dósum og flöskum og leika með bíla og fleira ofan í þeim.  Mjög skapandi og skemmtilegur leikur

 Myndir

 
Skipulagsdagur Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 22 mars 2010 15:22

Þriðjudaginn 6. apríl er Fálkaborg lokuð vegna skipulagsdags starfsmanna.

Páskafríið lengist því um einn dag

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 61

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Fálkaborg, Fálkabakka 9, 109 Reykjavík | Sími: 557-8230 | Póstur | Viðburðir | Fréttir