|
Göngutúr |
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 16:26 |
|
Börnin á Arnardeild, yngsti hópurinn, fór í göngutúr. Við tókum ávöxtin með okkur í nesti og borðuðum úti í náttúrunni. Fuglarnir voru rétt hjá okkur. Bryndis: „Anna María, eigum við að gefa fuglunum vínber. Þeir eru kannski líka svangir“.
Næst fórum við niður brekkuna, Herdís, sem er yngst var síðust í röðinni og börnin pössuðu vel uppá að fara ekki á undan henni. Börnin á Arnardeild hugsa vel um vini sína. Anna Marín sá jólatré og Anna María bauð henni að finna hvernig grenitré er viðkomu. Anna Marín: „Ég finn ekkert, ég er með vettlinga“. Hún tók af sér vettlingana, snerti tréð og sagði: „Það er vont“.
Það var erfitt að labba í skóginum. Anna Marín, rétti Dísu hendina og sagði: „Ég skal hjálpa þér“. Þær stóðu saman og klöppuðu fyrir afrekum sínum. Þegar Anna Marín datt, hljóp Birkir til hennar og sagði: „Ég skal hjálpa þér“.
Þegar við vorum komin heim sagði Bryndis: „Anna María, eigum við að fara aftur á morgun?“. Það er gaman að fara í göngutúr. |
|
„Mér finnst rigningin góð“ |
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 14:47 |
|
Í dag var sullað og bakað. Ánamaðkar fengu að prufa að synda í drullupollum og svo fékk flugan að æfa sundtökin!
Myndirnar tala sínu máli. |
|
Harmonikkuskemmtun |
|
|
föstudagur, 23 apríl 2010 14:30 |
|
Einn liður í verkefninu Kynslóðirnar saman er heimsókn eldri borgara í leikskóla. í dag komu gestir frá Harmonikkufélagi Reykjavíkur í Fálkaborg. Þau sögðu okkur frá hljóðfærinu, spiluðu fyrir okkur og við sungum með. Við dönsuðum líka og allir sem vildu fengu að spila á hljóðfærið.
Myndir |
|
Rafstöð í Fálkaborg |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 21 apríl 2010 12:57 |
|
Stelpurnar í Gula hóp eru að rannsaka hvernig rafmagnið verður til. Þær kveiktu á ljósaperu með því að láta vatn úr slöngu renna í gegnum litla rafstöð sem Sigga kom með í leikskólann.
Eftir hádegið fóru þær í Rafstöðina í Elliðaárdal. Þær fylgdust með hvernig vatnið í Elliðaánum rennur inn í rafstöðvarhúsið.
Myndir
Fróðleg ferð í Elliðárdalinn og heimsókn í rafstöðina. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 6 af 61 |