|
Maxímús Músíkús |
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 18 maí 2012 11:43 |
|
Gulu- og rauðu hópar fóru í dag með rútu í Hörpu. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listdansskóli Íslands buðu okkur ásamt fleiri skólum að koma og sjá sýninguna Maxímús Músíkús bjargar ballettinum. Sagan um Maxímús fléttaðist saman við fallega tónlist og ballettdans. 
Myndir í myndaalbúmi |
|
Gulu hópar á vorhátíð í Breiðholtsskóla |
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 10 maí 2012 13:57 |
|
Elstu börnunum var boðið á vorhátíð í Breiðholtsskóla. Fyrst var farið í ýmsa leiki inn í íþróttasal ásamt börnunum í fyrsta bekk. Eftir það var boðið uppá hressingu inn í matsal. Í boði voru ávextir, vatn, djús og kex. Að því loknu fórum við öll út að leika í frímínútum. Það var mjög gaman að hitta gamla félaga og systkini.
Myndir í myndaalbúmi gula hóps. |
|
Myndlistarsýning í Mjódd |
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 08 maí 2012 16:10 |
|
Í dag opnaði myndlistarsýning leikskólabarna í Bakkahverfi með pomp og pragt í Mjóddinni. Kór elstu barnanna frá öllum leikskólunum í Bakkahverfi sungu nokkur lög og svo var smá söngur. Síðan fengu börnin að gæða sér á skúffuköku og ávaxtasafa áður en þau skoðuðu svo sýninguna sem er glæsileg sem endranær..jpg)
Sýningin mun vera uppi í Mjóddinni til 16. maí og því tilvalið að fara og skoða herlegheitin.
Myndir frá opnunni má finna í myndasafninu. |
|
Umferðarskóli og kveðjur |
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 03 maí 2012 09:46 |
|
Núna fer að líða að því að elstu börnin fara að kveðja og við notuðum tækifæri í útiverunni um daginn að kveðja eina unga dömu..jpg)
Einn af vorboðunum er Umferðarskólinn en guli hópur fór yfir í Arnarborg til að fá fræðslu um umferðina og hvernig ber að haga sér þar.
Sjáið fleiri myndir í myndasafninu. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 94 |